Verk Þórdísar Erlu Zoëga eru bæði drifin áfram af efnislegri rannsókn og glöggvun á stafrænni nánd, eftir-mannhyggju, vísindaskáldskap og tengingu. Hún vinnur verk sín í fjölbreytilega miðla, má þar nefna innsetningar, skúlptúra, málverk og vídeó. Innsetningar hennar skerpa iðulega á þeim hugrenningartengslum sem skapast á milli manneskju og umhverfis hennar. Með notkun manngerðra efna og litbreytingafilmu, tekst Þórdís Erla á við stafræna fagurfræði hversdagslífs okkar, og varpar nýju ljósi á þau samskipti og tengingar sem leggja grunninn að samtíma okkar.

Hlekkir

Valin verk

Sýningar

Fréttir