Image courtesy of the artist and Leifur Wilberg.
Þórdís Erla Zoëga selected for Billboard Commercial Break, Reykjavík
06. nóvember 2025
06. nóvember 2025
Þórdís Erla Zoëga hefur verið valin til að sýna í Auglýsingahléi Billboard 2026 en Billboard rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og víða á höfuðborgarsvæðinu.
Billbord efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallery og verk Þórdísar Erlu „Sólarhringur“ var hlutskarpast.
„Fyrstu dagana í janúar 2026 verður Auglýsingahlé á yfir 500 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir Þórdísi Erlu Zoëga sem valin var úr stórum hópi umsækjenda. Valnefnd var skipuð skipuð fulltrúum frá Listasafni Reykjavíkur, Y galleríi og SÍM,“ er haft eftir tilkynningu.
„Verk Þórdísar ,,Sólarhringur” hvetur til nýrrar hugsunar um samband manns, tækni og náttúru. Það leggur til að skjáir í borgarrými breytist með birtu dagsins og taki mið af litbrigðum sólarljóssins og áhrifum þess á himinhvolfið. Þannig verður stafræni skjárinn að sólarklukku sem sýnir takt lífsins, þar sem líftími frumunnar fylgir ljósaskiptum sólarhringsins í rauntíma,“ segir um verkið.
Við hvetjum borgarbúa til þess að fylgjast með verkinu á skjám höfuðborgarinnar frá og með 1. janúar 2026 og óskum Þórdísi Erlu til hamingju.