Steina og Woody Vasulka eru frumkvöðlar í vídeólist, og hafa leikið lykilhlutverk í þróun og umbyltingu miðilsins í gegnum ævilangar tilraunir sínar og þróanir, sem ná allt frá túbusjónvörpum til stafrænna tölvukerfa. Með bakgrunn í verkfræði og klassískri tónlist, náðu þau að afbyggja efnisleika rafrænna boða og beita sér fyrir flóknum rannsóknum á möguleikum stafræns myndefnis, auk gagnvirkni hljóðs og myndar. Verk þeirra og stofnun The Kitchen í New York árið 1971, halda áfram að móta vídeó-listasöguna og veita kynslóðum listamanna sem fylgdu í fótspor þeirra innblástur.

Hlekkir

Valin verk

Sýningar

Fréttir