Ian McKeever er breskur listamaður sem hóf feril sinn árið 1969 eftir nám í enskum bókmenntum. Hann hefur sinnt ýmsum kennslustörfum, þar á meðal prófessorstöðu í teikningu við Royal Academy School of Art í London, verið gestaprófessor við Städel Akademie der Kunst í Frankfurt, dósent við Slade listaháskólann í London og gestaprófessor við háskólann í Brighton. Verk hans leitast við að endurskilgreina aðferðir innan málverksins, hvernig það getur birst okkur sem efnislegur hlutur, án þess að það glati hugvekjandi og fagurfræðilegu gildi miðilsins.

Hann á einkasýningar að baki í Kunststation Sankt Peter í Köln, Þýskalandi, Josef Albers Museum í Bottrop, Þýskalandi, Sønderjylland Kunstmuseum í Tønder, Danmörku og Royal Academy of Arts í London. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir framlag sitt til myndlistar, má þar nefna hina virtu DAAD styrkveitingu í Berlín, auk þess sem hann hlaut heiðursnafnbót frá Royal Academy árið 2003.

Hlekkir

Valin verk