Dieter Roth (1930-1998) var einn áhrifamesti listamaður eftirstríðsáranna. Hann bjó til margbreytileg verk í ólíka miðla, ekki einungis grafíkverk, teikningar, málverk, skúlptúra og bækur, heldur einnig innsetningar, hljóð-, myndbands- og ljósmyndaverk o.fl. Dieter er hvað þekktastur fyrir verk sín úr lífrænum efnum, aðallega niðurbrjótanlegum matvælum á borð við súkkulaði, ost og sykur. Dieter Roth gerði alls 524 grafíkverk á ferli sínum og eru mörg þeirra einstök. Það er vert að nefna að Dieter notaði allar þekktar prentaðferðir (og aðrar sem hann fann upp sjálfur) við gerð verkanna – tréristur, ætingar, koparristur, akvatintur, offsetsteinþrykk, silkiþrykk o.s.frv. Heildarsafn grafíkverka eftir listamanninn hefur því verið kallað eitt það ríkulegasta og fjölbreyttasta sem einstakur listamaður hefur nokkru sinni gert.

Valin verk

Sýningar