Yfirstandandi sýning
 

Þórdís Erla Zoëga

 

11 apríl - 23 maí, 2026

 
Á sýningunni Domestic Sci-fi beinir Þórdís Erla Zoëga sjónum sínum að mótunaröflum samtímans, þar sem náttúrulegir ferlar mæta sífellt hraðari tækniþróun og gervigreind. Sýningin varpar ljósi á umbreytingartímabil þar sem hið heimilislega og tæknivædda renna saman og ný tegund veruleika tekur á sig mynd.

Í verkinu Forecast vinnur Þórdís með forspárgildi gervigreindar. Þar birtast mögulegar framtíðarmyndir - sólarupprás og sólsetur, sem spáð er fyrir um langt fram í tímann. Myndefni gervigreindarinnar er unnið áfram og hver mynd dregin saman í ákveðinn kjarna eða augnablik. Hvert verk er merkt með rómverskum tölustöfum sem gefur til kynna það ártal sem spáð er fyrir um hverju sinni. Þrátt fyrir hraða tækniframfara stendur himininn og sólin eftir sem stöðugir viðmiðunarpunktar í gegnum tíma og ár. Myndefnið er þó óskýrt og óáreiðanlegt; þrátt fyrir tæknilega nákvæmni stendur eftir óvissan og takmörk þekkingar okkar á því sem koma skal.

Verkin vísa jafnframt til marglaga tímaskynjunar þar sem fortíð og framtíð skarast í nútímanum. Forn tímakerfi - eyktir og rómverskt tímatal - skipta niður dögum og árum sem byggja á hreyfingu jarðar og sólar, á meðan samtíminn einkennist af sífelldu flæði gagna. Á þessu spennusviði mætast hægur taktur náttúrunnar og hraði tækninnar.

Í innsetningunni Everyday fylgjumst við með bláum hring ferðast um rými sem er gert úr rimlagardínum. Hringurinn er unninn úr litbreytifilmu (e.dichroic film) sem var upprunalega þróuð af NASA fyrir geimferðir. Hann snýst rangsælis og endurvarp hans ferðast bæði um innri og ytri veggi rýmisins. Þó að hringurinn sjálfur sé blár er endurvarp hans bæði rautt og gult, sem minnir á sólina og stöðuga hreyfingu himintunglanna. Hugmynd verksins vísar til endurtekinnar daglegrar rútínu þar sem opnað og lokað er fyrir gardínur, athöfn sem er endurtekin á hverjum degi fyrir tilstilli snúnings jarðar. Að taka á móti nýjum degi er sammannleg venja, en hún mótast af sambandi jarðar og sólar. Í náttúrunni fylgja lífverur gangi sólar; morgunljós virkjar líkama og frumur, en rökkur undirbýr þær fyrir hvíld. Þessi taktur heldur líkamanum og huganum í jafnvægi. Í dag hafa skjáir og gerviljós raskað þessu jafnvægi. Blá ljós frá tækjum heldur líkamanum í stöðugu „hádegi“, truflar svefn og endurnýjun frumna.

Framfarir tækninnar virðast óstöðvandi. Við reynum að laga okkur að síbreytilegum veruleika og vernda viðkvæman líkama og huga innan kerfa sem þróast hraðar en líffræðileg geta okkar. Domestic Sci-fi vísar til þess hvernig hið ótrúlega hefur orðið hversdagslegt: tæknin sem áður tilheyrði vísindaskáldskap er nú órjúfanlegur hluti heimilisins. Gervigreindin tekur sér stöðu véfréttar með nærveru sinni. Hún er aðgengileg og sífellt hlustandi, en svör hennar eru hvorki endanleg né algild.

Sýningin staðsetur sig á stefnumóti hins kunnuglega og framandi, og vekur upp spurningar um það hvernig við skynjum tíma, ímyndum okkur framtíðina og hvernig við finnum jafnvægi á milli tæknivædds veruleika og náttúrunnar sem við fjarlægjumst meira með degi hverjum.