Steina Vasulka, Orbital Obsessions, 1975–77 (still). Single-channel video, black and white, sound; 24:24 min.
Steina Vasulka at Buffalo AKG Art Museum, US
17. mars 2025
Einkasýning Steinu Vasulka, Playback, hefur hafið göngu sína í AKG listasafninu í Buffalo, New York.

Steina Vasulka er brautryðjandi á sviði margmiðlunar í myndlist, vídeós, gjörninga og innsetninga. Frá því að Steina stofnaði The Kitchen í New York borg árið 1971, hefur hún skapað verk sem mótast af tilraunakenndri nálgun á vídeótæknina sjálfa, þrálátri könnun á því sem hún kallaði vélsýn og viðvarandi leikgleði og tilraunamennsku. Steina, sem er klassískt menntaður fiðluleikari, hóf feril sinn í vídeói árið 1970 og notaði til þess Sony Portapak vél til að byrja með, þar sem hún beitti aðferðafræði tónlistarmannsins á þessa nýju tækni, og sá nýja möguleika í flæði tímans. Ólíkt mörgu af hennar samtímafólki sem störfuðu við vídeómiðilinn á hans fyrstu mótunarárum, taldi Steina bandaríska sjónvarpsmenningu ekki vera hið miðlæga afl sem skilgreina mætti verk hennar út frá. Þess í stað var mannleg skynjun henni afar hugleikin, þar sem hún leitaði að ríkulegum möguleikum „greindrar en samt ekki mannlegrar sýnar“.

Steina átti einnig veigamikinn hlut í að móta þá framúrstefnu sem umlukti Buffalo á áttunda áratugnum. Steina: Playback er því táknræn endurkoma listamannsins, sem kenndi við margmiðlunardeild Center for Media Study (SUNY) á þessum tíma, auk þess sem hún sýndi verk sín í Albright-Knox árið 1978 í sýningunni The VASULKAS / Steina: Machine Vision, Woody: Descriptions.

Verk Steinu mótuðust í takt við breytilegt umhverfi hennar, allt frá suðupotti menningar New York borgar yfir í tilraunakennda listasenu Buffalo, í bland við margvísilegt landslag Nýju Mexíkó og Íslands. Frá og með tíunda áratugnum urðu verk hennar enn meira alltumlykjandi fyrir áhorfandann með tilkomu nýrrar vörpunartækni. Flæði árbakka, alda, ljóss og vinda virkuðu sem náttúruleg hliðstæða við rafrænt flæði vídeó- og hljóðmerkjanna sem hún hafði fengist við. Í gegnum músíkalska nálgun sína, sem svo teygir sig yfir hinn sjónræna heim, myndgerist hin skýra viðleitni hennar til að ferðast handan mannlegrar sýnar. Úr verður rafræn samþætting engu öðru lík, þar sem orka tveggja heima -þess tæknilega og náttúrulega, verður að samhljómi.

Sýningin Steina: Playback er skipulögð af MIT List Visual Arts Center í samstarfi við Buffalo AKG Art Museum og er sýningarstýrt af Natalie Bell og Helgu Christoffersen. Sýningin stendur til og með mánudeginum 30. júní 2025.