Steina: Tímaflakk, Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur
22. september 2025
Sýningaropnun þann 4.október 2025, kl.14.

Sýningin Tímaflakk er fyrsta stóra yfirlitssýningin á verkum Steinu Vasulka hér á landi. Með verkum sínum hefur hún tengt saman vídeólist, tónlist og tækni á einstaklega skapandi og frjóan hátt. Sýningin var upphaflega skipulögð í Bandaríkjunum undir heitinu Playback og sett þar upp á tveimur söfnum árið 2024 en hér á landi verður hún viðameiri að umfangi og inntaki. Rakinn verður listrænn ferill Steinu frá upphafi til samtímans og birtir sýningin í heild því afar áhugaverða mynd af þróun tækni og listar á síðustu áratugum.

Steina Vasulka (fædd Steinunn Briem Bjarnadóttir, 1940) lærði fiðluleik í Reykjavík og Prag, og flutti til New York árið 1965 með eiginmanni sínum, Woody Vasulka. Í lok sjöunda áratugarins hóf hún að einbeita sér að myndbandsverkum og stofnaði árið 1971 The Electronic Kitchen (síðar The Kitchen), sem var goðsagnakenndur sýningar- og samkomustaður fyrir hljóð- og myndbandslistamenn í New York. Hún flutti til Buffalo árið 1973 þar sem hún þróaði vinnu sína að myndlist og tæknirannsóknum enn frekar. Frá árinu 1980 hefur hún búið í Santa Fe í Nýju-Mexíkó, sýnt reglulega víða um heim og eru mörg verka hennar talin til lykilverka í sögu vídeólistar.

Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur munu sameiginlega standa að sýningunni sem verður opnuð 4. október 2025 og lýkur 11. janúar 2026. Hún fer fram í fjórum sýningarsölum Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg og fjórum sölum Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi við Tryggvagötu. Sýningin er skipulögð af MIT List Visual Arts Center í samvinnu við Buffalo AKG-listasafnið. Sýningarstjórar eru Natalie Bell, MIT List Visual Arts Center, og Helga Christoffersen, Buffalo AKG-listasafninu. Hérlendis stýra verkefninu Markús Þór Andrésson og Pari Stave.

Í undanfara opnunar Tímaflakks verður verkið Eldrúnir (Pyroglyphs) eftir Steinu sýnt í Listaháskóla Íslands, dagana 1.-3. október.

Sýningin stendur til og með 11.02.2026.