Steina and Woody Vasulka at Thoma Foundation, US
29. október 2025
Sýningin Ephemeral Acts, sem opnar um helgina í Thoma Foundation í Santa Fe, kannar hverfulleika tímatengdra miðla, þar sem tíminn þjónar bæði sem miðill og skáld. Á sýningunni má líta verk Steinu og Woody Vasulka.

Sýningunni er sýningarstýrt af Kathleen Forde, sem er yfir nýmiðladeild safnsins, en valið á verkum sýningarinnar undirstrikar skuldbindingu Thoma Foundation gagnvart því að safna, varðveita og miðla bæði sögu og samtímalandslagi margmiðlunarlista. Hver listamaður sem er til sýnis í Ephemeral Acts á fleiri en eitt verk í safneign Thoma Foundation, en safnið leitast við að safna verkum í gegnum mismunandi tímabil hvers listamanns fyrir sig.

Verk Steinu og Woody sem til sýnis verða eru:
Steina, Violin Power, 1970-78
Woody and Steina Vasulka, Noisefields, 1974

Sýningin opnar þann 31. október 2025 og stendur til og með 16. maí, 2026.