Steina and Woody Vasulka í Tate Modern
21. nóvember 2024
Verk Steinu og Woody Vasulka eru meðal þeirra sem til sýnis eru um þessar mundir í viðamikilli samsýningu á Tate Modern og kallast Electric Dreams. Art and Technology Before the Internet. Sýningin varpar ljósi á aðferðafræði listamanna sem notuðu tækni, vélar og algóryþma á árunum 1950-'90, svo úr varð hugvekjandi og framúrstefnuleg myndlist.

Sýningin stendur til og með 28. nóvember 2024, og hvetjum við sem flesta til að kynna sér hana.