Sigurður Guðjónsson í Listasafni Einars Jónssonar, Reykjavík
31. mars 2025
31. mars 2025
Sigurður Guðjónsson
Innrými
11. apríl – 15. júní 2025
Listasafn Einars Jónssonar
Sýningin Innrými er innblásin af hinni sérstæðu byggingu Hnitbjörgum, bæði innra sem ytra. Einar Jónsson, myndhöggvari, skapaði í safnhúsi sínu heildstæð rými sem opnast fyrir áhorfandanum þegar inn er stigið og hægt er að merkja í arkitektúr meðvitað handbragð myndhöggvarans. Sigurður Guðjónsson skapar hér sín eigin rými og opnar heima sem eru jafnan huldir með því að margstækka fyrirbæri og sýna þannig atriði sem mannsaugað getur annars ekki greint. Hann er vanur því að takast á við sérstæð rými í sinni sköpun, umbreyta og endurskapa þau með hljóði og mynd. Í einstökum heim Hnitbjarga tekur hann sér stöðu með því sem fyrir er í gegnum fjölradda innsetningu sem á sjónrænt samtal við rýmið, stöplana og bygginguna.
Opnun sýningarinnar hefst kl.17 og sýningin stendur til og með 15. júní 2025.