Mynd tekin af Róberti Reynissyni.
New public sculpture by Rósa Gísladóttir, Reykjavík, IS
08. janúar 2026
08. janúar 2026
Nýtt verk eftir Rósu Gísladóttur, Stanslaus, er risið við Grensásveg 1.
Skúlptúr myndlistarkonunnar Rósu Gísladóttur, Stanslaus, var valinn til uppsetningar við nýbyggingu á Grensásvegi 1 í samstarfi lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.
Verkið Stanslaus var valið úr innsendum tillögum í lokaðri samkeppni en í umsögn dómnefndar segir meðal annars að verkið kallist á við bogalínur hússins á áhrifaríkan hátt. Hluti verksins er fagurlitað gler og mun skúlptúrinn njóta sín jafnt að nóttu sem degi með fallegri lýsingu. Reikna má með að verkið verði kennileiti fyrir bygginguna og nærliggjandi svæði og áhugaverður hluti af götumynd Grensásvegar, hins nýja húss og mikilvægra gatnamóta, þar sem fjöldi akandi, hjólandi og gangandi vegfarenda á daglega leið um.
Samkeppnin um listaverk við Grensásveg 1 var unnin í samstarfi lóðarhafa og Reykjavíkurborgar með fulltingi Sambands íslenskra myndlistarmanna og hafði Listasafn Reykjavíkur umsjón með verkefninu.