Image courtesy of LÁ Art Museum and Rósa Gísladóttir
Kees Visser og Rósa Gísladóttir í Listasafni Íslands
11. október 2024
11. október 2024
Listamennirnir Kees Visser og Rósa Gísladóttir eiga verk á tímamótasýningu Listasafns Íslands, Innsýn, útsýn, en sýningin markar 140 ára afmæli safnsins.
Þar má sjá má verk eftir hátt í 100 listamenn, mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í tímans rás, þeirra á meðan nokkur lykilverk Kees og Rósu.
Sýningunni er skipt upp í fjóra hluta sem eru: samfélag; myndir af manneskjum; Form, línur, litir og maður og náttúra. Þessi fjögur þemu skarast vitaskuld en verk listamanna sem horfa út – á landið, nánasta umhverfi, samfélagið eða heiminn allan – veita gjarnan nýja sýn sem leiðir til sjálfsuppgötvunar einstaklinga og samfélags. Að sama skapi má segja að þeir listamenn sem horfa í verkum sínum inn á við, í könnun á sjálfinu, sögu eða menningararfi, opni um leið sýn út á við; víðari heimsmynd.
Lesið frekar um sýninguna hér. Hún stendur þar til í apríl 2025.