Katrín Elvarsdóttir í Listasafni Reykjavíkur
06. mars 2025
Katrín Elvarsdóttir er meðal sýnenda á nýrri samsýningu í Listasafni Reykjavíkur, List er okkar eina von!

Sýningin samanstendur af nýjum aðföngum safnsins sem eiga það sameiginlegt að vera eftir kvenkyns listamenn.

Í sýningartexta segir: Listasafn Reykjavíkur heldur utan um 17 þúsund færslur í safnskrá sinni og þar hallar verulega á hlut kvenna. Fyrir þessu eru ýmsar skýringar, stofn safneignar í upphafi var að mestu verk karla, safnið varðveitir þrjú yfirgripsmikil einkasöfn karla og innkaup fyrr á tímum voru karllæg. Síðustu ár hefur orðið vitundarvakning, bæði hvað varðar safneignina og sýningadagskrána. Unnið hefur verið markvisst að því að rétta hlut kvenna í sögu og samtíma með átaki í aðföngum, rannsóknum og miðlun.

Sýningunni er sýningarstýrt af Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, safnstjóra.