Katrín Elvarsdóttir opnar sýningu í íslenska sendiráðinu, Helsinki
18. mars 2025
Katrín Elvarsdóttir opnar einkasýningu í íslenska sendiráðinu í Helsinki, föstudaginn 4. apríl 2025. Sýningin ber titilinn A BOTANICAL FUTURE.

Harald Aspelund býður af þessu tilefni til móttöku að lokinni formlegri opnun sýningarinn í Gallerie Käytävä, þar sem sýningarstjóri sýningarinnar, Dr. Ásthildur Jónsdóttir, veitir innsýn í sýninguna ásamt listamanninum.

Á sýningunni má líta verk úr tveimur seríum Katrínar, annars vegar Tropical Colony og hins vegar Fimmtíu plöntur fyrir frið, sem var frumsýnd í BERG Contemporary árið 2023.

Síðustu tvo áratugi hefur Katrín Elvarsdóttir skapað sér einstaka sérstöðu sem listamaður sem vinnur innan ljósmyndamiðilsins. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis, auk samsýninga. Þar að auki hefur hún unnið til merkra verðlauna fyrir verk sín, ber þar helst að nefna tilnefningu til Deutsche Börse ljósmyndaverðlaunanna árið 2009, en hún hlaut hin virtu Eikon ljósmyndaverðlaun árið 2017 í Vínarborg.

Til að fræðast betur um aðgang að sýningunni og um listamanninn, vinsamlegast hafið samband í gallery@bergcontemporary.is