Katrín Elvarsdóttir, Dawn Redwood in San Jose, 2024
Katrín Elvarsdóttir at Reykjavík Art Museum, IS
16. desember 2025
16. desember 2025
Blómstrandi Framtíð er titill nýrrar einkasýningar Katrínar Elvarsdóttur sem opnar þann 23. janúar 2026 í Hafnarhúsi, Listasafni Reykjavíkur.
Í sýningunni beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna.
Í forgrunni eru þrjár plöntutegundir – kirsuberjatré, bananatré og fenjagreni – sem hver um sig býr yfir langri og áhugaverðri sögu sem tengir saman ólíkar heimsálfur.
Katrín eltir þær með myndavélinni – ekki til að festa þær niður, heldur til að skrá þær og færa þær yfir í annað form. Í myndinni tilheyra þær enn öðrum heimi, þeim sem Katrín skapar. Þær bera vitni um eitthvað sem flyst en gleymist ekki og þess sem getur blómstrað – jafnvel langt frá uppruna sínum.
Auga myndavélarlinsunnar fangar afmarkað umhverfi á örskotsstund en Katrín Elvarsdóttir skrásetur um leið sögu, menningu og náttúru sem nær aldir aftur í tímann og spannar ólík heimshorn. Viðfangsefni nýjustu verka hennar er kvikur heimur hugmynda og upplýsinga sem flæða um veröldina og draga fram togstreitu á milli fjölbreytileika og einsleitni. Verk sín setur hún fram með margslunginni eftirvinnslu, ýmist í kjarna myndarinnar sjálfrar eða efnisvali, sem eykur enn á lagskiptingu þeirrar upplifunar sem hún ber á borð áhorfenda.
Sýningarstjóri er Bryndís Erla Hjálmarsdóttir. Katrín gaf nýverið út bókverk sem ber sama titil og sýningin, en hún gefur greinargóða innsýn inn í ferli listamannsins.