Myndir: Þorkell Þorkelsson & Kjartan Þorbjörnsson
Í minningu Björns Roth og Godds
06. janúar 2026
06. janúar 2026
Við í BERG Contemporary viljum hefja nýtt starfsár á því að minnast Björns Roth og Godds, sem nú eru fallnir frá. Báðir voru þeir góðir vinir og samstarfsfélagar, en framlag þeirra til íslenskrar myndlistar er ómetanlegt. Við kveðjum þá með þakklæti og virðingu og sendum fjölskyldum þeirra og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Björn Roth var fæddur árið 1961, en listrænn ferill hans hófst með tilraunakenndum, sjónrænum tónlistargjörningum í lok áttunda áratugar síðustu aldar og þróaðist fljótlega í umfangsmikið og náið samstarf með föður hans, Dieter Roth. Frá andláti Dieters hefur Björn unnið jöfnum höndum að eigin listsköpun samhliða áframhaldandi þróun viðamikilla innsetninga og annarra sameiginlegra verka þeirra feðga. Björn var einn af listamönnum BERG Contemporary, og hélt einkasýningu í galleríinu árið 2018, þar sem hann sýndi Taugasallöt sín, olíu og vatnslitaseríur sem listamaðurinn vann á árunum 2009 - 2018.
Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) fæddist árið 1955 og var sérfræðingur í myndmálsnotkun og sögu grafískrar hönnunar á Íslandi. Síðustu tvo áratugi vann hann við kennslustörf við hönnunardeild Listaháskóla Íslands, sem hann sjálfur stofnaði í kringum aldamótin. Hann kom víða við, en auk þess að sinna kennslu af miklum eldmóð var hann einnig myndlistargagnrýnandi. Hann skipulagði fjölda listasýninga og skrifaði ógrynni greina um hönnun og myndlist. Hann átti í farsælu samstarfi við Bjarna H. Þórarinsson, en samstarfsverk þeirra eru til sýnis í galleríinu.
Minning þeirra mun lifa áfram í myndlistarverkum þeirra og arfleifð um ókomna tíð.