Finnbogi Pétursson með einkasýningu í Gerðarsafni, Kópavogi
29. október 2024
PARABÓLA er titill nýrrar einkasýningar Finnboga Péturssonar í Gerðarsafni, Kópavogi, sem opnar þann 30. október 2024.

Í sýningarskrá segir: „Finnbogi Pétursson hefur gert það að ævistarfi sínu að skapa aðstæður þar sem áhorfandinn tekur eftir, skynjar, þessa krafta. Oft í gegnum bylgjur, sem heyrast stundum en í öðrum verkum sjást. Í Parabólu gerir hann takt Jarðar sýnilegan. Listamaðurinn notar hljóð en það ómar ekki heldur skapar hreyfingu. Hljóðið gárar vatnið eins og ósýnilegur dropi sem fellur og kemur af stað bylgjum sem ferðast eftir vatnsfletinum. Með hætti sem einskorðast við þessa plánetu.“

Sýningarstjórar eru Hallgerður Hallgrímsdóttir og Brynja Sveinsdóttir. Sýningin stendur til 19. janúar 2025.

Frekari upplýsingar í hlekk.