Image courtesy of The Icelandic Art Center and Sunday&White
Finnbogi Pétursson er Myndlistarmaður ársins 2026
16. mars 2026
Við óskum Finnboga Péturssyni innilega til hamingju með verðlaunin Myndlistarmaður ársins 2026, sem afhent voru við fjölmenna athöfn í Austurbæjarbíói þann 11. mars. Logi Einarsson, menningarráðherra afhenti verðlaunin. Verðlaunin hlýtur hann fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.

Finnbogi Pétursson (f. 1959): blandar saman hljóði og myndrænni framsetningu í innsetningum sem eiga sér fáar fyrirmyndir í myndlist og teygja sig yfir á svið tónlistar og jafnvel sviðslistar. Hann nýtir tækni á hugvitssamlegan hátt í verkum sínum og umbreytir t.d. hljóðbylgjum í ljós sem varpast af gáruðum vatnsfleti, eða býr til hreyfiskúlptúra sem framleiða hljóð. Sum verka hans eru svo stór að þau má næstum skoða sem arkitektúr, meðan önnur eru smá og nánast efnislaus, en öll gefa þau frá sér hljóð eða eru einhvers konar líking við hljóð.

Finnbogi nam við Myndlista- og handíðaskólann og Jan Van Eyck-akademíuna í Hollandi. Hann hefur markað sér sérstöðu með tæknilegum rýmisverkum sem gagntaka skynjun sjónar og heyrnar í tilkomumiklum einfaldleika. Á síðustu árum hefur Finnbogi opnað á tilfinningar í verkunum líkt og í Skjálfta. Í umsögn dómnefndar segir að Skjálfti kjarni leiðarstef annarra verka Finnboga, sem hafa verið innblástur listamanna, vakið áhuga fræðimanna og sýningargesta.

Verk Finnboga hafa verið sýnd víða, meðal annars í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, WWU Gallery í Bellingham, Schafhof – European Center for Art í Þýskalandi, Stedelijk Museum í Hollandi, Moderna Museet í Svíþjóð, Wood Street Galleries og Sean Kelly Gallery í Bandaríkjunum. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2001, auk þess sem hann hlaut Gerðarverðlaunin árið 2022, en þau eru veitt listamanni fyrir ríkulegt framlag til höggmynda- og rýmislistar á Íslandi.