Liðnar sýning
 

Dodda Maggý, Finnbogi Pétursson, Gruppo MID, Iván Navarro, Jitish Kallat, Sirra Sigrún Sigurðardóttir & Steina
Svindlað á síbylgunni

 

21 júní – 2 ágúst, 2019

 
Dodda Maggý’s (f. 1981) lagði stund á nám í myndlist og tónsmíðum á Íslandi og víðsvegar um Skandinavíu. Með myndrænum hljóð-innsetningum sínum rannsakar Dodda Maggý margslungið listrænt tungumál tímatengdra miðla. Hún leitast við að sýna innri víddir drauma, minninga og ímyndunar í gegnum innsetningar, vídeó, tónlist, hljóðverk og hreyfimyndir. Prentverk hennar endurspegla enn fremur nýjar útfærslur á skynrænu ferli listamannsins, en Dodda Maggý á að baki yfirgripsmikinn feril innan myndlistar og tónsmíða.

Finnbogi Pétursson (f. 1959) lærði í Hollandi og á Íslandi og hefur tekið þátt í sýningarhaldi allt frá árinu 1980 allar götur síðan. Hann blandar saman hljóði og myndrænni framsetningu í innsetningum sem eiga sér fáar fyrirmyndir í myndlist og teygja sig yfir á svið tónlistar og jafnvel sviðslistar. Hann nýtir tækni á hugvitssamlegan hátt í verkum sínum og umbreytir t.d. hljóðbylgjum í ljós sem varpast af gáruðum vatnsfleti, eða býr til hreyfiskúlptúra sem framleiða hljóð. Sum verka hans eru svo stór að þau má næstum skoða sem arkitektúr, meðan önnur eru smá og nánast efnislaus, en öll gefa þau frá sér hljóð eða eru einhvers konar líking við hljóð. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2001.

Gruppo MID er myndlistarhópur sem stofnaður var árið 1964 í Mílanó á Ítalíu af Antonio Barrese, Alfonso Grassi, Gianfranco Laminarca og Alberto Marangoni. Gruppo MID er af mörgum talinn leiðandi afl innan kínetískrar og forritunarlistar, en MID stendur fyrir orðin stökkbreyting, ímynd og vídd á upprunamálinu ítölsku (mutamento, immagine e dimensione). Hópurinn leystist upp árið 1972, en áhrifum þeirra á kínetíska list (hreyfilist).

Iván Navarro (f. 1972) er fæddur í Santiago, Chile, inn í fjölskyldu listamanna. Reynsla hans af því að alast upp undir einræðisstjórn Augusto Pinochet hefur um margt mótað list hans. Notkun hans á rafmagni í verkum sínum minna um margt á þær pyntingar og mannréttindabrot sem einkenndu þjóð hans undir ógnarstjórn Pinochet. Listamaðurinn er því hvað best þekktur fyrir skúlptúrísk verk sín sem bera með sér félagslega og pólitíska undirtóna, þar sem hann beitir neonljósum, flúorlýsingu og glóandi ljósum, og er óhætt að fullyrða að verkin kalli fram skynræna upplifun hjá áhorfanda sínum.

Jitish Kallat (f. 1974) er indverskur listamaður. Hann á umfangsmikinn feril að baki, þar sem hann vinnur í margvíslega miðla, allt frá ljósmyndun, málverki, skúlptúr, innsetningar og margmiðla, en verk hans hafa verið sýnd um heim allan í mörgum af merkustu söfnum samtímans. Jitish Kallat er einn af þeim listamönnum sem standa í forsvari fyrir Indland á Feneyjatvíæringnum árið 2019.

Sirra Sigrún Sigurðardóttir (f. 1977) vinnur með margvísleg sjónræn gögn í verkum sínum til þess að sýna fram á huglægni gilda. Hún beitir lit og hreyfingu til þess að rannsaka meginreglur stöðugra breytinga. Verk Sirru Sigrúnar virðast oft dansa á línu lista og skemmtunar, þar sem þau grípa athygli áhorfandans um leið og þau sýna nákvæm smáatriði listrænna rannsókna hennar á litrófi, hreyfingu og rými. Hún rýnir ennfremur í listasöguna og veltir fyrir sér stöðu listamannsins, tölulegum upplýsingum, vísindakenningum og staðfræðilegu samhengi.

Steina (f. 1940) er frumkvöðull á sviði vídeólistar, en hún hóf feril sinn sem listamaður árið 1960. Hún fluttist búferlum frá Reykjavík til Praq árið 1959 til þess að leggja stund á fiðlunám, þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, kvikmyndagerðarmanninum Woody Vasulka. Árið 1965 fluttu þau saman til New York borgar, þar sem fókus Steinu færðist alfarið í átt að vídeómiðlinum. Þrátt fyrir að Steina og Woody hafi margoft átt í samstarfi í verkum sínum, þá hefur nálgun Steinu gagnvart vídeóinu skilað sér í ríkulegu ævistarfi, sem samanstendur bæði af gjörningaverkum og tilraunum með miðilinn sjálfan. Hún nýtir sér oft fiðluleikinn, ekki bara til þess eins að skapa hljóð, en einnig til þess að leika sér að myndbandmerkinu á rafrænan hátt. Verk hennar bera með sér ljóðræna eiginleika, sem koma skýrt fram í margra skjáa innsetningum hennar þar sem íslenskt landslag kemur fyrir, auk náttúrunnar í Nýju Mexíkó, þar sem hún og Woody bjuggu saman frá árinu 1980. Hún hefur kannað skalann allan af möguleikum rafrænna boða og gagnvirkni hljóðs og myndar. Verk hennar má finna í mörgum af helstu listasöfnum heims, auk þess sem hún hlaut heiðursnafnbót frá Guggenheim safninu árið 1976 og fór fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringinn árið 1997, fyrst allra kvenna.