Liðnar sýning
Steina & Woody Vasulka
Orka og Lucifer's Commission
24 ágúst – 26 október, 2024
Sjónarspil Orku (1997) eftir Steinu Vasulka hverfist í kringum náttúrumótíf, upptökur listamannsins af hreyfingum fugla og skordýra á Íslandi, lækjum og fossum, séðum frá sjónarhorni kamerunnar. Verkið var fyrst sýnt á Feneyjatvíæringnum árið 1997, þar sem Steina var fyrsti kvenkyns listamaður þjóðarinnar í forsvari fyrir Ísland. Hún er um margt frumkvöðull á sínu sviði sem vídeólistamaður, en þess má einnig geta að hún stofnaði fyrsta vídeófestivalið tileinkað kvenlistamönnum árið 1972, aðeins ári eftir stofnun The Kitchen sem hún kom á laggirnar í samstarfi við eiginmann sinn, Woody. The Kitchen, sem enn er starfrækt, hefur alla tíð síðan verið suðupunktur margmiðlunar, gjörninga og vídeólistar í New York borg þar sem þau bjuggu um árabil. Steina lagði stund á klassískan fiðluleik í Prag þar sem þau hjónin kynntust og á hún það til að líkja Orku við sinfóníu. Verkið hefur eigið flæði, eitt tekur við af öðru, vatn streymir upp á við og til hliðar, og náttúrulögmálin eru endurskilgreind líkt og sýn okkar á náttúruna.
Önnur verk þessarar sýningar eru einnig mörkuð af tíma og náttúruöflum, en Lucifer’s Commission er sería stórra prentverka sem Woody Vasulka gerði á árunum 1977-2003. Um er að ræða abstrakt verk sem eiga uppruna sinn í filmuprentuðum stenslum fyrir rafrásir sem listamaðurinn fann á ruslahaugum bandaríska hersins í Los Alamos. Hann skildi stenslana eftir utandyra og leyfði þeim að verða fyrir áhrifum umhverfisins í fjölda ára, en skannaði þá síðar inn og bjó til seríuna eins og hún kemur okkur fyrir sjónir í dag. Verkin bera því með sér undirliggjandi sögu hernaðar, loftslagsbreytinga, kjarnorkuiðnaðar og tæknilegs symbólisma, en undirstrika á sama tíma samband mannlegrar tilveru og hverfulleika miðla og minnis.
List Woodys eru að mörgu leyti undir sýnilegum áhrifum af bakgrunni hans sem kvikmyndagerðamanns og verkfræðings, en í stað þess að nota vídeómiðilinn til frásagnar eða sagnamiðlunar lagði hann ríka áherslu á framþróun tæknilegra möguleika miðilsins sjálfs. Saman hafa hjónin skipað sér einstakan sess sem brautryðjendur innan vídeólistar á heimsvísu, en þau voru iðin við listsköpun sína allt frá sjöunda áratug síðustu aldar. Í gegnum þau margvíslegu tæki og tól sem þau þróuðu áttu þau þátt í að skapa sögu miðilsins, en rannsóknir þeirra á aðferðafræðum á borð við kóðun, endurgjöf og öðrum rauntímaáhrifum efldu nýja sýn á miðilinn svo um munaði. Einnig má geta sér þess til að djúpstæður áhugi Woodys á vélbúnaði umfram frásagnargleði endurspegli uppvöxt hans á eftirstríðstímum í Tékkóslóvakíu.
Það er því þverfagleg tilraunagleði hjónanna sem endurspeglast í prentum þeirra sem hér eru sýnd og urðu til vegna áhuga þeirra á stafrænum og hliðrænum ferlum, sem jafnframt staðsetur þau fremst meðal jafningja þegar kemur að aðferðafræði innan rafrænnar myndgerðar. Verk þeirra hafa verið sýnd víðsvegar um heim, þar á meðal í Whitney safninu í New York, Pompidou safninu í París, á Berlín Biennale, auk þess sem þeim hafa hlotnast ýmsar heiðursnafnbætur á ferli sínum, meðal annars frá Guggenheim safninu í New York og San Francisco Art Institute. Verk þeirra tilheyra mörgum af virtustu safneignum heims, má þar nefna Tate safnið í Bretlandi, MOMA safnið í New York, SFMOMA safnið í Kaliforníu, Whitney safnið í New York og Smithsonian safnið í Washington og mætti lengi áfram telja. Að lokum má nefna að síðastliðin tvö ár hefur MIT List Visual Art Center í Boston unnið að yfirlitssýningu á verkum Steinu sem opnar þann 26. október næstkomandi. Woody Vasulka lést árið 2019, en Steina Vasulka býr og starfar í Santa Fe í Bandaríkjunum.