Yfirstandandi sýning
 

Ryoji Ikeda
data-verse

 

March 6 - July 4, 2026

 
Í verki sínu data-verse (2019-2020), sækir Ryoji Ikeda innblástur sinn í gögn sem eiga upptök sín í vísindarannsóknum í heimi eðlis- og stærðfræði, en þeim hafði hann sankað að sér á yfir 16 ára tímabili. Markmið listamannsins beinist að því að skoða náttúruna og þau lögmál sem liggja henni til grundvallar. Ikeda byggir sjálfþróuð kerfi og mynstur sem kristallast í næmu fegurðarskyni og frjóu ímyndunarafli hans. Efniviðinn sækir hann í umfangsmikil gagnasöfn Bandarísku geimvísinda stofnunarinnar (NASA), Kjarnrannsóknastofnun Evrópu (CERN) og Mannerfðamengis áætlunarinnar (The Human Genome Project). Undirstaða verksins er því byggð á vísindalegum grunni, t.d. uppbyggingu próteina, erfða, hnitum vetrarbrauta og svo framvegis. Minimalískur hljóðheimur verksins er búinn til með gagna-hljóðvæðingu svokallaðri, þar sem gögnum er umbreytt í hljóð. Með því að sameina hljóð, ljós og mynd, verður verkið alltumlykjandi fyrir áhorfendur, sem gefst tækifæri á að upplifa það á hugmyndafræðilegan, sjónrænan og nánast líkamlegan hátt.

data-verse er umfangsmikið verk í allri sinni mynd og miðar að því að varpa ljósi á hin örsmáu en jafnframt ósýnilegu kerfi sem við hrærumst í daglega, svo sem eiginleika frumefna og atóma þeirra. Listamaðurinn fjallar um hið mannlega, bæði líkamlega tilvist, borgarskipulag, internetið, flugumferð og loftslag. Hann skoðar órafjarlægðir himingeimsins, upplýsingar um kosmískar ofurþyrpingar, skammtafræði og líkindamat á fjölheimum. Ikeda leikur því með skala og lagskiptingu á áður óþekktan hátt, sem verður til þess að áhorfendur fá ný tækifæri til þess að upplifa þekkingu sem list. Við lifum í gagnadrifnu umhverfi, en það eru nú fleiri bæti af stafrænum gögnum í veröldinni en áætlað magn stjarna í alheiminum. Raunverulegt virði gagnanna liggur þó í upplifun, skilningi okkar og nýtingu á þeim á vegi framþróunar.

Um listamanninn:
Ryoji Ikeda (f. 1966 í Gifu, Japan) er leiðandi listamaður innan sjónlista og tónsmíða á heimsvísu, en hann einbeitir sér jafnan að frumeiginleikum hljóðs og myndar, og nýtir sér óspart stærðfræði til að skapa nákvæma fagurfræði sína. Hann útfærir hljóð, mynd og efniskennd á sannfærandi hátt í verkum sínum, sem eru innblásin af afrakstri vísindarannsókna, svo úr verður heildræn upplifun. Hann er þekktur fyrir lifandi tónlistarflutning sinn, tónsmíðar og áhrifamiklar innsetningar, auk þess sem hann hefur gefið út bækur og hljóðútgáfur. Frá árinu 2008 hefur hann sett upp einkasýningar í mörgum af stærstu söfnum í heimi, má þar nefna Centre Pompidou í París, Park Avenue Armory í New York, Museum of Contemporary Art í Tokyo, ZKM Centre for Art and Media Karlsruhe, Eye Filmmuseum í Amsterdam, Taipei Fine Arts Museum, 180 The Strand í London, Hirosaki Museum of Contemporary Art, Amos Rex í Helsinki, High Museum of Art í Atlanta, National Asian Cultural Center í Gwangju, auk annarra. Hann býr og starfar í París, Frakklandi og Kyoto í Japan.


Ryoji Ikeda
data-verse 2
2019
DCI-4K DLP myndvarpi, tölva, hátalarar
Hugmynd, samsetning: Ryoji Ikeda
Tölvugrafík, forritun: Norimichi Hirakawa, Tomonaga Tokuyama, Satoshi Hama, Ryo Shiraki
Unnið að beiðni Audemars Piguet Contemporary