Liðnar sýning
 

Páll Haukur
[...]

 

11 október - 15 nóvember, 2025

 
Ný einkasýning Páls Hauks, unnin í margvíslega miðla.

Páll Haukur fjallar um hugmyndafræðileg sambönd náttúru, mennsku og menningar. Í því samhengi leitast list Páls við að spyrja hvernig eitthvað hljóti merkingu til að byrja með, hvaða mýtur liggja að baki merkingarframleiðslu samtímans. Verk hans krefja áhorfandann ennfremur um síendurtekna táknfræðilega ákvarðanatöku, þar sem samhengi hlutanna er í eilífri endurskoðun og líkamleiki áhorfandans spilar lykilhlutverk. Allt tekur umbreytingu, en Páll Haukur notar endurtekið lífræn efni í verkum sínum, auk þess sem hann beitir orðum og texta sem hlutum. Þannig skoðar hann takmarkanir dauðra hluta í leit að tengingu við umhverfi sitt.

Páll Haukur útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá California Institute of the Arts árið 2013 og hefur komið víða við á sýningarferli sínum síðan, en verk hans hafa meðal annars verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands hér á landi. Hann er lektor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og er virkur í sýningarhaldi innanlands sem utan.