Liðnar sýning
Haraldur Jónsson, John Zurier, Kees Visser, Páll Haukur, Þorgerður Þórhallsdóttir
#currentmood
3. nóvember – 22. desember, 2017
John Zurier (f.1956) málar abstraktverk þar sem litir og yfirborð skapa andrúmsloft og
stemningu staða og tímabila – séðra og óséðra, fortíðar og framtíðar. Málverkin bjóða uppá
hámarkstilfinningu lita, ljóss, og rýmis með einföldum og beinskeyttum aðferðum. Málverkið
sem miðill er honum hugleikinn, en verk hans bera merki tilraunakenndrar aðferðafræði
gagnvart efninu sjálfu. Hann vinnur að mestu með olíumálningu og egg-temperu á ýmsar
gerðir striga, auk vatnslitar á pappír. Verk hans hafa verið sýnd á tvíæringum á borð við Whitney Biennial (2002) í Bandaríkjunum, Gwangju Biennial (2008) í suður Kóreu, og São Paulo Biennial (2012) í Brasilíu. Hann hlaut John Simon Guggenheim Fellowship árið 2010.
Kees Visser (f. 1948) yfirgaf heimaland sitt Holland á áttunda áratugnum og settist að á Íslandi, þar sem hann dvelur langdvölum samhliða búsetu sinni í Frakklandi og Hollandi. Á Íslandi tileinkaði hann sér stefnu og aðferðafræði Flúxus, minimalisma og konseptlistar.
Verk hans einkennast af abstraksjón og vinnur hann mikið í seríum, þar sem megináhersla hans er á litafræði, þrívíð form og framsetningu þeirra. Verk hans á pappír einkennast af fíngerðri litadýpt og kristölluðu yfirborði sem listamaðurinn framkallar í gegnum marglaga ferli, á meðan skúlptúrísk verk hans notast við ákveðnar litaraðir og vísa oft til almennra nytjahluta og strúktúra. Verk hans hafa verið sýnd víðsvegar um heiminn og tilheyra mörgum af helstu listasöfnum samtímans.
Haraldur Jónsson (f. 1961) nam myndlist við skóla á Íslandi, í Frakklandi og Þýskalandi. Hann sýndi fyrst undir lok níunda áratugarins og sýningar hans hafa verið ótrúlega fjölbreyttar. Hann hefur sýnt skúlptúr, hljóðverk, ljósmyndir og teikningar, auk þess að flytja gjörninga. Verk hans vísa í grunnhugmyndir framúrstefnulistarinnar á tuttugustu öld en Haraldur vinnur úr því í ýmiss konar efnivið og með mismunandi framsetningu. Þrátt fyrir það bera verk hans sterkan persónulegan svip og flest verkin eiga það sameiginlegt að breyta upplifun áhorfandans af efninu og umhverfinu. Þannig hefur hann búið til skúlptúra sem fjalla um þögn eða fjarveru, teikningar sem ögra hugmyndum okkar um eftirmyndun og myndbyggingu, innsetningar úr fjöldaframleiddum hlutum og iðnaðarefni, og lista af orðum yfir tilfinningar sem prentaðir eru út sem veggfóður og rugla þannig hugmyndum okkar um innri og ytri reynslu. Hann reynir að sýna það sem alla jafna er falið og gefa því form sem venjulega er óformað. Hvert verk kallar á nýja nálgun við efnið en þau virðast öll hafa þróast beint frá hugmynd að lokaframsetningu því Haraldur leitast við að þurrka sjálfan sig úr verkunum. Á sýningum hans upplifum við hugmyndirnar beint og þannig sáir hann fræjum sinnar skapandi hugsunar í huga áhorfandans þar sem þær halda áfram að spíra og vaxa.
Páll Haukur Björnsson (f. 1981) lagði stund á myndlist við Listaháskóla Íslands þaðan sem hann útskrifaðist árið 2008 og svo við California Institute of the Arts þaðan sem hann lauk MFA-gráðu árið 2013. Páll hefur verið virkur við sýningarhald bæði hérlendis sem og í Los Angeles, þar sem hann bjó frá 2011 til 2017, og hefur meðal annars sýnt í Gerðarsafni, Nýlistasafninu, Kjarvalsstöðum, Pasadena Armory, LTDgallery og Machine Projects. Páll býr nú og starfar í Reykjavík. Með myndlist sinni reynir Páll Haukur að búa til verk sem birtast áhorfandanum handan yfirskilvitlegra formgerða og táknræns stigveldis og skapa þeim sem upplifir nýjar forsendur til merkingar. Páll vinnur gjarnan í miðla sem eru háðir tíma, rúmi og krefjast oft beinnar íhlutunar af hálfu áhorfenda.
Þorgerður Þórhallsdóttir (f.1989) útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2013 og lauk MFA-gráðu frá Malmö Art Academy 2016. Þorgerður var í stjórn listamannarekna sýningarrýmisins Kunstschlager á árunum 2013-2015. Þorgerður hefur sýnt víða heima og erlendis, meðal annars í Künstlerforum í Bonn, Studio 44 í Stokkhólmi, Kling&Bang, Listasafni Reykjavíkur og Hafnarborg. Minnið og skynjun eru helstu viðfangsefni Þorgerðar.